Innsend hugmynd frá íbúa - opið svæði og útisvæði í brekku

Innsend hugmynd frá íbúa - opið svæði og útisvæði í brekku

Innsend hugmynd frá Ingu Láru Gylfadóttur: Útbúa sleðabrekku og útisvæði í brekku, “googlaði” aðeins útisvæði í brekku og fann skemmtilegar myndir https://www.pinterest.com/pin/105553184989959373/

Points

Varðandi opið svæði þá hljómar vel að útbúa sleðabrekku, sé sjálf ekki beint þörf á grillaðstöðu þar en “googlaði” aðeins útisvæði í brekku og fann skemmtilegar myndir. (258) Pinterest / https://www.pinterest.com/pin/105553184989959373/

Sleðabrekka á alls ekki heima á þessum stað í passar ekki á nokkurn hátt inn í þetta umhverfi og aðstæður m.a. vegna hæðamunar að aðliggjandi lóðum og fjórfættum nágrönnum.

Það eru mörg önnur svæði í hverfinu sem geta nýst til útivistar án þess að opna á aðgengi almennings að þessu tiltekna svæði. Einnig er mjög góður leikvöllur stutt frá eða á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs. Um það bil 90m frá Grundarhvarfi og rétt rúmlega 200m frá efstu húsum Dimmuhvarfs. Malbikaðir göngustígar alla leið. Styttra getur það varla verið.

Svæðið er alls ekki stórt og við setjum stórt spurningamerki við að sleðabrekka komist hreinlega fyrir þarna. Það eru fjölmörg önnur svæði í hverfinu sem myndu henta betur en þetta tiltekna svæði. Þar sem svæðið hallar í átt að lóðum við Dimmuhvarf og hæðarmunur er mjög mikill þyrfti að girða af þær lóðir til að skapa ekki hættu fyrir börn við leiksvæði ef útbúa á sleðabrekku, boltavelli eða annað.

Það yrði afskaplega erfitt að koma sleðabrekku fyrir þarna. Svæðið hallar í átt að lóðum sem þyrfti þá að girða af þar sem hæðarmunur er það mikill og myndi skapa hættu fyrir börn á sleðum.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information