
Náttúrufræðistofan er frábær og til fyrirmyndar. Bæði sýningar parturinn og rannsóknar parturinn. Við ættum að halda áfram því frábæra starfi sem þar er unnið.
Frábær fræðsla fyrir fólk á öllum aldri. Ein af perlum Kópavogs.
Yndislegt starfsfólk sem tekur á móti skólahópum með bros á vör og fullt af flottum upplýsingum. Tekst alltaf að vekja nemendur til umhugsunar og vekja upp jákvæð viðbrögð.
Stór hluti af menningarlífi okkar og ekki bara Kópavogsbúa.
Náttúrufræðistofa er mikilvæg fyrir skóla og gaman fyrir alla að skoða Við eigum að halda í það sem vel er gert faglegt starf
Ekki leggja niður það sem vel er gert
Áhugaverð sýning á ýmsum dýrum og fuglum m.a. Þar sem Náttúrugripasafnið er ekki opið né aðgengilegt er enn meiri ástæða og þörf á að halda þessari sýningaraðstöðu opinni. Að ég tali nú ekki um starfið sem unnið er á vegum Náttúrufræðistofunnar.
Sýningarparturinn af Náttúrufræðistofunni höfðar til fólks á öllum aldri, og þá sérstaklega barna og þeirra sem yngri eru. Með öllu tilgangslaust að loka henni, ef eitthvað þá ætti að stækka hana og bæta við hana.
Frábær staður bæði fyrir kennslu og fyrir ungt fólk og aðra að heimsækja, gaman að koma
Sýningarparturinn er frábær til að fræðast og fræða börnin um leið
Fræðandi og skemmtilegt safn fyrir börn og ekki síður fyrir fullorðna.
Algerlega til fyrirmyndar og hefur alltaf veriđ Hafa tekiđ virkan þàtt í barnamenningu bæjarins og skilađ ómetanlegu starfi í þágu náttúru og umhverfis
Frábær staður sð koma á. Bæði fyrir börn og fullorðna
Mikil menningarverðmæti eru falin í náttúrufræðistofunni; sýningar, kennsla og ekki síst rannsóknir. Ekki veitir af að styrkja náttúruvitund fólks almennt.
Söfn eiga ekki að skila hagnaði þau eru sómi bæjarfélagsins
Frábært starf sem höfðar til allra
Frábært safn í alla staði.
Frábær kennslustaður, og afdrep frá dagsins önn
Fer reglulega þarna með börnin mín til að fræða þau um útlit og nöfn á dýrunum. Ég var svo sjálfur reglulegur gestur á digranesveginum í minni æsku.
Náttúrufræðistofan er ómissandi fyrir börnin. Við höfum farið ótal ferðir í gegnum árin, séð ferðalanga og fræðsluhópa koma og skoða. Ómissandi fyrir bókasafnið og laðar börnin inn á safnið.
Frábært safn í alla staði, besta náttúrufræðisafnið til að koma með skólahópa í heimsókn, frábær þjónustulund starfsfólks, hæfilega lítið sem kennsluvettvangur en fjölbreytt og skemmtilegt.
Fræðandi og skemmtilegur staður að heimsækja! Auk þess eru mikilvægar rannsóknir sem fara fram hér!
Órjùfanlegur hluti af sögu og menningu Kópavogs
Mikil menningarverðmæti eru falin í náttúrufræðistofunni, bæði sýningar, kennsla og ekki síst rannsóknir. Ekki veitir af að styrkja náttúruvitund fólks almennt.
Tengsl safnsins við menntun ungmenna á sviði náttúruvísinda eru ómetanleg. Þar er verið að fjárfesta í framtíð okkar allra. Slík fyrirhyggja er ekki metin til fjárs.
Kópavogur er næst stæsta sveitafélag landsins og ber að halda uppi merkjum þeirra sem byggðu þennan bæ.
Einstakt starf sem hefur farið fram á Náttúrufræðistofnun Kópsvogs og stór þáttur í allri framtíðarsýn í náttúruvernd fyrir Kópavogsbúa og landsmenn alla.
Það er fróðlegt og skemmtilegt að skoða sýningu Náttúrufræðistofu, fyrir stóra sem smáa, aftur og aftur. Perla sem ekki má hverfa og engin ástæða er til að breyta.
Frábær staður og gott starf unnið gjá Náttúrufræðisþofnun.
Kópavogur hefur alltaf verið menningarbær og ég vil að svo verði áfram fyrir komandi kynslóðir
Þarna hefur verið unnið frábært starf í gegnum tíðina, bæjarbúum til gagns og ánægju og starfsfólki og Kópavogsbæ til sóma.
Frábært safn sem bæði börn og fullorðnir hafa gaman af að skoða.
Metnaðarfullur sýningarsalur sem alltaf er gaman að koma í með börnin mín
Náttúran sjálf er mest undrið. Sterkasta upplifunin er að upplifa hana á Náttúrufræðistofunni og í vettvangsferðunum. Auk þess sem rannsóknirnar gegna mjög mikilvægu hlutverki í bænum, á landsvísu og jafnvel alþjóðlega.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation