
Kópavogsbær kaupi Landsbankahúsið og byggð verði brú milli húsa sem nýst getur sem aukið rými og skjól fyrir Hálsatorg. Húsin sem heild myndi Samfélagsmiðstöð fyrir íbúa. Bistro á Hálsatorg í stað þess sem er á Gerðarsafni.
Brú skapar sterkari tengingu á milli stofnana bæjarins. Velferðarsvið komi nær öðrum sviðum. Með tengingu á milli stofnana skapast aukið rými. Samfélagsmiðstöðin í Helsinki er byggð sem brú og væri hægt að taka hana sem fyrirmynd og sérstaklega starfsemina þar. Skapa aðstæður fyrir úti-innikaffihús (Bistro) en þá fáu daga sem viðrar er nær hvergi hægt að sitja úti í Kópavogi. Nýta aukið rými á Gerðarsafni fyrir sköpunar- og vísindasmiðju fyrir yngstu börnin með nestisaðstöðu. Hugsa heildrænt.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation